það er ein mynd sem mér finnst þarfnast umfjöllunar. hún er að vísu ekki komin út en hún á að koma út í bandaríkjunum 26. desember. hún heitir ‘dungeons & dragons movie’. þetta er svona fantasy, galdra, ævintýramynd, gerð eftir hinu ever-vinsæla spunaspili dungeons & dragons. meðal frægra leikenda eru jeremy irons og thora birch (dóttirin í american beauty). ég er eiginlega bara hissa á undirtónum að vera búnir að fleygja fram grein um hana. þeir eru nú svo forvitnir og framsæknir. ef einhver hérna er að vinna hjá tímariti eða einhverju slíku, endilega leyfið fólki að heyra af þessari mynd. ég meina, hún gæti alveg verið góð! og þá getið þið tekið allt kreditið fyrir að hafa sagt frá þessari mynd fyrst!
ég er bara ég. þú ert bara þú. hver er orginal?