Ég var að fletta í myndbönd mánaðarins fyrir nokkru síðan og sá mynd þar sem heitir Code Red: The Rubicon Conspiracy. Flestir kannast nú við Predator myndirnar starring Arnold Scwharz… whatever… og Danny Glover í seinni myndinni, og eftir að sjá myndina á hulstrinu(grunsamlega lík predator grímunni), lesa textann á hulstrinu(The ultimate trophy for the ultimate PREDATOR.), og lesa umfjöllunina sem segir eitthvað um grimmilegar limlestingar í frumskógum Afríku á einhverjum vísindamönnum… Og nú er ég alveg að brjálast yfir því að hafa ekki heyrt um að Predator 3(ef þetta er hún) hafi verið að koma út eftir að hafa horft á myndirnar aftur og aftur og jafnvel lesa Predator comic books og allan pakkan!

… Alla vegana getur einhver frætt mig um það hvort þetta sé the real deal, eða bara einhver rip off mynd… Takk…

- Kiddo

P.S. Ég get ekki leigt myndina því ég bý út á landi með cheap ass vídeóleigu!