Þetta er reyndar nokkuð gömul frétt, en fyrir nokkru síðan tryggðu Dimension Films sér réttinn á kvikmynd um Duke Nukem frá Threshold Entertainment. Flestir þekkja þessa frægu tölvuleikjapersónu, en fyrir þá sem að gera það ekki bendi ég þeim á gott safn yfir alla leiki Duke á<a href="http://www.videogames.com/features/universal/duke_hist/p1_01.html">GameSpot</a>.

Ekki er mikið vitað um þessa mynd, en þó er hægt að búast við því að einhver eins og Arnold Schwarzenegger muni leika aðalhlutverkið.
Larry Kasanoff mun framleiða myndina, en hann gerði Mortal Kombat myndirnar á sínum tíma.