Neysla fíkniefna hefur nú kostað Robert Downey Jr. vinnuna sem hann fékk Golden Glope verðlaunin fyrir. Framleiðendur sjónvarpsþáttanna um lögræðinginn Ally McBeal hafa fengið nóg af ruglinu á leikaranum og ráku hann úr þáttunum nokkrum klukkutímum eftir að hann var handtekinn í úthverfi Los Angeles á þriðjudag undir áhrifum fíkniefna. Emmy verðlaunahafinn og framleiðandi þáttanna, David E. Kelley segir að þeir séu að vinna í að skrifa Downey út úr þáttunum, en það ferli mun fara fram án leikarans. Hann bætti við að hann óskar Robert góðs gengis í meðferðinni og að hann finni varanlegan bata á þessu vandamáli sínu.