One night at McCool´s One night at McCool´s er mynd leikstýrð af Harald Zwart. Í henni leika m.a. Liv Tyler, Matt Dillon, John Goodman, Paul Reiser, Michael Douglas og ofurtöffarinn Andrew Dice Clay. Myndin er grínmynd og fjallar í stórum dráttum um Jewel Valentine (Tyler) sem er kona með nafn klámstjörnu, útlit klámstjörnu og áhuga klámstjörnu á að gera það með eins mörgum karlmönnum og hún getur. Í myndinni er sýnt þegar þrír karlmenn falla fyrir henni á sama tíma (Hljómar þetta kunnuglega). Dillon leikur Randy, auralausan barþjón sem Valentine flytur inn til, Goodman leikur rannsóknarlögreglumann sem vill losna við Randy, Reiser leikur Carl sem einnig hefur notið Valentine. Douglas leikur svo Mr. Burmeister sem Randy borgar til þess að drepa Valentine. Myndin hefur hlotið mjög fína dóma úti þó að söguþráðurinn hafi verið notaður oft áður.