A.I. og markaðssetning hennar A.I. og markaðssetning hennar.

Án efa þá er ein af þremur eftirvæntustu myndum sumarsins A.I. eða Artificial Intelligence nýasta mynd Steven Spielberg og draumaverkefni Stanley Kubrick en í henni leika Haley Joel Osment, Jude Law, Frances O´Connor og William Hurt. Það hefur ekki í sjálfu sér verið gefið upp hvað myndin sé um nema að sem Spielberg skrifaði á netsíðu A.I. ; myndin gerist eftir að allir jöklar á jörðunni hafa bráðnað vegna gróðurhúsaáhrifa og segir frá vélmenni að nafni David en honum langar til þess að verða alvöru strákur, þetta hljómar eins og sagan af Gosa. Um daginn kom nýr teaser og í honum talaði William Hurt um að byggja vélmenna strák,

William Hurt: I propose that we build a Robot child, who can love, a robot child who will genuine love the parent or parents in a Princeton(?) with a love who will never end.
Ours will be perfect child caught in a frees frame, always loving, never ill, never changing
With all the childish couples, journeying in wean, for a license.
It will fill a great a human need!
(A.I. teaser 2 sem er hægt að sjá hjá CountingDown.com)

Þeir hjá AintItCoolNews.com tóku eftir því í endanum á teasernum þá stóð í cast and crew; Sentient Machine Therapist - JEANINE SALLA!! Svo þeir leituðu í leitarvélinni www.google.com þar fundu þeir official netsíðu Jeanine Salla og þar var hægt að finna heilmikið af upplýsingum um vélmenni! Þaðan var linkur á aðra vélmenna síðu svo áfram og áfram! Þá fatta þeir að þetta er hluti að markaðssetningu hennar!!

Daginn eftir sendir maður e-mail til Harry hjá AintItCoolNews.com og sagði að hann hefði fundið skríngilegan hlut á A.I. posterinu og það hljóðaði þannig að þegar hann fékk plagatið í hendurnar þá var þetta ný típa af plagatinu; A.I. plagatið var þannig að bíóin gátu sett það í gluggana og sést rétt! (plagatið var speiglað) Þessi náungi tók eftir litlum hringjum utan um nokkra stafi sem var á speigluðu hliðinni og hann skrifaði stafina niður og útúr kom; “EVAN CHAN WAS MURDERED” og “JEANINE WAS THE KEY”!!

Mér finnst persónulega þessi markaðssenting rosalega sniðug og ég get ekki lýst með neinum mannlegum orðum yfir eftirvæntingum og spennu sem á mér hvílir eftir myndinni!

Þeir sem vilja rekja A.I. vefsíðu markaðsetninguna geta byrjað á því að skrifa JEANINE SALLA í www.google.com og ef þú villist getur þú farið á netsíðunna hér til hliðar: http://www.aintitcoolnews.com/display.cgi?id=8659 og fengið leiðsögn þeirra!

IndyJones