X-Men eða Mutant X Núna er Fox og Marvel í lagalegum deilum varðandi X-Men æðið. Marvel er nefnilega að byrja tökur á sjónvarpsseríu sem heitir Mutant X. Fox og Marvel gerðu þann samning, þegar Fox fékk réttinn að X-Men myndinni, að Marvel mætti ekki gera Live-Action mynd eða þætti byggða á X-Men nema með samþykki Fox. Fox finnst eins og Marvel séu að nýta sér vinsældir myndarinnar X-men til að selja Mutant X seríuna.

Marvel, nokkrum mínútum eftir að Fox ákærði þá, ákváðu að fá dóm frá réttinum um að þeir væru ekki að troða Fox um tær.

Rök Fox eru að Mutant X gæti haft áhrif á vinsældir X-men framhaldsins. Sem er þannig séð, möguleiki. Ef serían sýgur þá gæti það haft neikvæð áhrif á fólk.

Marvel segir aftur á móti að þeir hafi ekki selt rétt sinn á að gera þætti byggða á X-Men og bæta við að Mutant X eigi ekkert skylt með X-Men nema það að það séu Mutants í báðum tilfellum. Mismunandi persónur eru í báðum seríum og eru þær víst allt öðruvísi í Mutant X.

Það á að byrja tökur á Mutant X, fjóðra júní, ef allt gengur vel. Fyrirfram sala á seríunni er búin að ganga vel og þess vegna mikið tap ef dómurinn verður Fox í vil.
[------------------------------------]