What Lies Beneath !! What Lies Beneath er hreint og beint frábær mynd.
Ég fór á hana í bíó og stemmninginn var alveg rosaleg. Maður hélt sér fast í sætið af spenningi út alla myndina, á milli þess sem salurinn öskraði af hræðslu !!!
Hún er nýkominn út á video og fyrir þá sem ekki hafa séð hana, það er hverrar krónu virði að taka hana.
Það besta við hana er að hún er ekki fyrirsjáanleg, eins og margar hrollvekjur eru…. ég gat alls ekki séð fyrir endann á henni. Hann kom mér mjög á óvart. Ekki sammála, þeir sem hafa séð hana ?
Allavana…. mér langaði bara að koma þessu á framfæri. Þið sem ekki hafið séð hana (sem eru ekki margir vegna þess að áhorfið á hana í bíó var rosalegur!) farið strax út á videoleigu, og þeir sem hafa séð hana…… hljóta að vera einróma sammála um gæði þessarar myndar. Er það ekki ?