The Mexican The Mexican(DreamWorks SKG)
Leikarar:
Bard Pitt - Jerry
Julia Roberts - Samantha
James Gandolfini - Leroy
Leikstjóri:
Gore Verbinski (MouseHunt)

Jerry vinnur fyrir mafíósa í einhverjum skítajobbum, kærastan hans Samantha vill að hann hætti í þessum bissness svo að hann ætlar að klára þetta verkefni sem hann er í svo ætlar hann að hætta en vinnuveitandi hans vill að hann taki að sér eitt enn verkefni svo hætti hann, ef hann gerir það ekki munu þeir drepa hann.
Hann tekur að sér verkefnið sem er að fara til Mexico og sækja forna byssu að nafni “The Mexican”.
Þegar hann segir kærustunni sinni frá þessu trillist hún því að þau ætluðu saman til Vegas.
Þau skiljast, Jerry fer til Mexico og Samantha fer til Vegas.
Þegar Jerry kemur til Mexico þá er engan veginn auðvelt að finna byssuna því að það eru menn á eftir honum sem vilja líka komast yfir byssuna og svo er kærustunni hans rænt af hýrum launumorðingja að nafni Leroy sem vill fá The Mexican í staðin fyrir hana!
Þetta er stutt summary af sögunni.

The Mexican hefur fengið góða dóma og James Gandolfini hefur fengið mjög góða dóma í hlutverki launumorðingjans Leroy.
Ég er sjálfur helvíti spenntur fyrir henni en hún verður frumsýnd 27.apríl í Háskólabíói og Laugarásbíói!!

IndyJones