Kærasta Keanu Reeves lést í slysi!!! Nýjar fréttir bárust um að Jennifer Syme, kærasta leikarans Keanu Reeves, hafi látist í bílslysi í Kaliforníu í gær. Jennifer Syme er sögð hafa ekið glæfraakstri á Cherokee-jeppa á öfugum vegarhelmingi hraðbrautar í Los Angeles, er hún hún missti stjórn á jeppanum og ók á þrjár kyrrstæðar bifreiðar. Jennifer var látin þegar sjúkraliðar náðu henni úr braki jeppans en nota þurfti tækjaklippur við það. Að sögn lögreglu var hún ekki í bílbeltum. Umboðsmaður Keanu Reeves segir að leikarinn hafi enn ekki viljað gefa nein viðtöl varðandi slysið. Vinur Keanu Reeves sagði við dagblað eitt að Keanu sé gjörsamlega niðurbrotinn og segir að þau hafi verið mjög náin. Vinur Keanu frétti af slysinu er móðir leikarans hringdi í hann grátandi. Keanu Reeves hafði samband við lögreglustöð til að bjóðast til að bera kennsl á líkið en lögregla taldi það óþarfa þar sem hún tók mið af ökuskírteini hennar. Jennifer og Keanu kynntust í partýi er hann hélt ásamt hljómsveit sinni, Dogstar.