The Cell..... Jæja ég var að horfa á The Cell með Jennifer Lopez og ég verð að segja að ég varð ekkert ýkja hrifin. Förðunin og tæknibrellurnar voru mjög flottar og hugmyndin var góð en alveg hreint afleitir leikarar ! Jennifer var ööömurleg og bara almennt allur leikurinn nema Vince Vaugnh var ágætur en ekkert meira en það, ég hef séð hann gera mikið betur. Og reyndar var Vincent D´onofrio mjög góður sem morðinginn.
ef það hefðu verið betri leikara og unnið hefði verið betur með þessa hugmynd hefði þetta nebbla getað orðið alveg þrusugóð mynd, finnst ykkur ekki ?
Ég er líka orðin soldið þreytt á þvi að trailerarnir sína allt allllllt of mikið úr myndinni. Ég sé það eftir að hafa horft á þessa mynd að þá hefði alveg dugað mér að sjá bara trailerinn, þar eru öll flottu atriðin sýnd !! ekki sammála ?