American Pie 2 Nú var byrjað á framhaldi myndarinnar American Pie á dögunum og Jason Biggs, aðalleikari fyrri myndarinnar hefur tekið að sér leikstjórahlutverkið þó að hann verði að sjálfsögðu að leika líka. Hann heldur aðalhlutverkinu og allir sem voru í fyrri myndinni halda áfram við gerð American Pie 2. Áætlað er að American Pie verði kominn í kvikmyndahús í ágúst 2000 en örugglega svona í janúar hjá okkur á íslandi. Jason ætlar að reyna að slá aðsóknarmet á American Pie 2 og er bjartsýnn á framhald myndarinnar.