Næsta mynd Steven´s Soderbergh verður endurgerð á myndinni Ocean´s Eleven. Í henni léku meðal annars Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr.
Í nýju myndinni verður þvílíkur sægur af flottum leikurum að maður fær vatn í munninn. Meðal leikara verða m.a.: George Clooney, Brad Pitt, Julia Roberts, Don Cheadle, Matt Damon, Andy Garcia og Bill Murray.
Myndin fjallar í stórum dráttum um 11 glæpamenn sem standa saman í að ræna stærstu Kasínóin í Las Vegas.
Ég veit ekki með ykkur en þetta er eitthvað sem ég mun bíða spenntur eftir.
Meira síðar. Sjáið helstu upplýsingar um myndina á imdb.com!