Ég var að horfa á Matrix fyrir soldlu síðan og tók eftir galla í myndinni. Þetta er fyrsti og eini gallinn sem ég hef séð í Matrix að öllu öðru leyti er hún fullkomin. Gallin er eiginlega alveg í byrjun myndarinnar þegar Neo (Keanu Reeves) er ný búinn að fá skammir frá yfirmanni sínum vegna þess að hann hafi komið of seint. Hann situr í básnum sínum og er eitthvað að hugsa þegar maðurinn frá Fed-ex kemur með pakka til hans en takið eftir því að þegar hann réttir honum pakkan þá sést í einhverja hendi á borðinu bakvið Neo síðan hverfur hún! Horfið á þetta atriði og sjáið þetta ég fór tvisvar á þessa mynd í bíó og fékk hana gefins um leið og hún kom út á video og búinn að sjá hana svona 50 sinnum án djóks en tók ekki strax eftir þessu það er ekki fyrr en þú grandskoðar myndina!

Endilega skrifið mér ef þið vitið um fleiri galla í myndinni.

Takk fyrir.
Ray Franco