***ÞESSI GREIN ER SPOILER FYRIR MYNDINA “The usual suspects”***

Ég sat áðan inni í sjoppu og var að lesa myndbandablaðið á meðan ég var að gæða mér á þessari svakalega góðu samloku.. er að renna yfir myndir sem voru framan á myndbandablaðinu á sínum tíma og rek augun í The Usual Suspects, snilldarmynd sem ég hef oft áður séð, en aldrei var hún eins skemmtileg og í fyrsta skipti sem ég sá hana. Þá fór ég að hugsa hvað endirinn kom mér á óvart fyrst, að allann tímann hafi það verið þessi lamaði maður sem Kevin Spacey leikur en ég hef ekkert hugsað út í það í öll hin skiptin sem ég hef horft á myndina. Svo leit ég upp úr blaðinu um stund og sá þar hulstur af mynd sem heitir Frailty og mundi þá hvað endirinn á henni var líka óvæntur.. eitthvað sem ég bara bjóst ekki við. Þá fór hugurinn að rúlla á fullu og fór ég að hugsa um myndir sem komu mér einna mest á óvart í sambandi við endi. Þá verð ég einna helst að tala um Memento þar sem að ég gat ekki ýmindað mér hvernig þessi mynd endaði og svo kom þessi frábæri endir sem ég bara átti ekki orð yfir. Ég get allveg talið upp nokkrar myndir sem komu mér skemmtilega á óvart sambandi við endi og verð ég þá einna helst að nefna:

The usual suspects
Memento
The Sixth sense
Seven
Fight Club
Being John malcovich
Frailty

en hvað segið þið?