Jæja…hvað get ég nú sagt ? þvílík mynd.
Þetta er Japönsk mynd frá árinu 2000. Og fjallar hún um 2 strokufanga sem eru á hlaupum í gegnum skó á flótta undan lögreglunni(stórskrýtnum lögreglumönnum). En við hinn endann á skóginum bíður glæpaklíka eftir þeim til að ná í þá. En þegar fangarnir koma á staðinn þá eru mótökurnar ekki vinalegar, og allt endar í háfaloftum þar þegar annar strokufangana kemst af því að glæpaklíkan tók með sér gísla. Þessi læti enda með því að einn út glæpaklíkunni verður drepinn og annar fanginn líka, hinn fanginn og gíslinn sleppa inní skóginn aftur. Eftir þetta tekur við einhver rosalegasta atburðarás sem ég hef séð í bíómynd.

Þessi atburðarás hefur í för með sér stórfurðulegra persóna(þegar maður heldur að maður sé búinn að sjá þær allar, þá koma alltaf nýjar enn furðulegri) Zombíur(með byssur :D), geðveik bardagaratriði, rosalega blóðslettur og mikið af líkamspörtum. Þessi mynd er keyrð á alveg rosalegri keyrslu og það er oft mjög erfitt að halda í þessa mynd. Á milli rosalegra bardagaratriða er verið að brytja niður Zombíur með tilheyrandi blóðsúrhellingum.

Þetta var nú ekki alveg það sem ég bjóst við þegar ég sast niður og fór að horfa á þessa mynd, bjóst við einhveri draugamynd. Ég myndi setja þessa mynd á stall með Evil Dead myndum, Draindead og Bad Taste. Það er alveg hægt að hlæja sig máttlausan ef maður heldur í þessa mynd.

Ég mundi gefa henni 3 af 4 stjörnum.
Helgi Pálsson