Ég leigði Human Traffic í gær og vissi voðalítið um hana og mér fannst ég vera að gera mistök að leigja hana. Ég sé samt engan veginn eftir því að leigja hana því hún var brilliant. Þvílíkur hraði í myndinni með dúndrandi danstónlist og yndislegri myndatöku. Þessi mynd er svoldið í anda Trainspotting þannig að fólk sem fílaði hana ætti pottþétt að sjá þessa. Breskar myndir eru að verða betri og betri með árunum(Lock Stock, Snatch, Trainspotting og nú Human Traffic). Ég eiginlega sé eftir því að hafa ekki farið á hana í bíó á sínum tíma. Ég fer ekki í söguþráðinn hérna( ég þoli ekki þegar fólk gerir það) en ég segi bara að hún fjallar um hóp af fólki sem er að fara að djamma, djúsa og DÓPA. Ég gef þessari **** af fjórum.

Cactuz******