Nú hafa tilnefningarnar til Óskarsverðlaunanna verið tilkynntar og er Gladiator með flestar tilnefningar, eða 12 alls. Það kemur svolítið á óvart að myndin með næstflestar tilnefningar er útlensk,Crouching Tiger, Hidden Dragon er tilnefnd til 10 óskara(það kemur nú samt ekki á óvart ef maður hefur séð hana).
Steven Soderbergh var tilnefndur sem besti leikstjóri fyrir bæði Erin Brockovich og Traffic, en þær voru einnig báðar tilnefndar sem besta myndin.