Fyrir þá sem hafa áhuga af virkilega grófum myndum þá er ég hér að
fjalla um nokkrar þannig.

“FACES OF DEATH” ***** - gef henni fullt hús, hreinnn viðbjóður!

Faces of death er ógeðslegasta mynd sem ég hef nokkurn tíma
litið augum á. Þetta er nokkurskonar heimildarmynd um dauða þar sem er sýnt allt í alvöru. Maður fær að sjá þegar það er verið að kryfja fólk, dauðdagi í rafmagnsstól og gasklefa, sjálfsmorð, ógeðsleg lík, sagaðir útlimir og meira segja er sýnt þegar fólk drepur apa og étur úr honum heilann. Það var samt eitt atriði sem mér fannst fara langt yfir strikið og það var þegar hópur manns í sértrúarsöfnuði skáru upp dauðan mann og átu úr honum líffærin og svo eftir það hoppuðu þau beint í hópríðingar.
En það sem sló mig við þessa mynd er að maður lærði alveg ofboðslega af henni. Hún sýndi manni það hvað fólk geta verið mikil fífl, hún sýndi manni hvað það er virkilega mikið óréttlæti í heiminum en líka sýndi hún hvað lífið getur verið hræðilega stutt
og að dauðinn getur verið handan við hornið. Þessi mynd breytti lífi mínu, kenndi mér að þykja vænt um það því það er svo stutt.
Viðbjóðsleg en fróðleg. Ég mæli ekki með að viðkvæmt fólk horfi á þessa mynd. Það eru voru líka gerðar nokkrar framhaldsmyndir.

“CANNIBAL HOLOCAUST” **** - gef henni 4

Hér er í gangi hálf bíómynd og hálf heimildarmynd um mannætur.
Heimildargerðarmenn fara í frumskóg kallaður Green Inferno til að festa lifnaðarhætti villimanna og mannætna á filmu.
Þau komu ekki aftur eins og til var ætlast þannig að maður er sentur með lið til þess að leita af þeim. Þeir komast svo að því heimildargerðamennirnir eru dauðir en fundu samt upptökur þeirra.
Þegar það er snúið til baka til borgarinnar vill þá fyrirtæki gefa
heimildarmyndina út en þegar þau horfðu á heimildarmyndina var svo heldur betur skipt um skoðun. Maður fær að sjá upptökurnar og eru þær viðbjóðslegar. Siðirnir hjá þessu villimönnum eru ekki fallegir. Það er verið að staksetja (Impale) kvenfólk, semsagt troða löngu spjóti upp í endaþarm og þangað til að það nær
út úr munn, þær eru svo látnar standa þannig. Svo er líka sýnt þegar það er verið éta fólk og líka þegar það er verið að brenna fólk.
Ógeðslegasta atriðið að mínu mati var þegar það var að sýna hvað þessir villimenn gerðu við óléttar konur. Þær voru nefnilega lamdnar og slegnar með allskyns hlutum á meðan fæðingu stendur, svo er barnið kyppt út og er því svo kæft með því að grafa því lifandi ofaní mold. Þegar fæðingu er lokið er konan laminn fast með grjóti í hausinn þangað til hún deyr.
Þessi mynd er alveg hryllileg og rosalega gróf. Alls ekki fyrir viðkvæma.

“BRAINDEAD” ***** - gef þessari fullt hús

Nóg komið af alvaralegum myndum…
“Braindead” er gerð af leikstjóra “Lord Of The Rings”
Peter Jackson, þótt ótrulega sé.
Hér er í gangi að mínu mati fyndin mynd. Myndin fjallar um apaskratta sem ber með sér vírus og er hann fluttur í dýragarð í Bretlandi. Einhver skrýtin félagi fer með mömmu sinni í dýragarðin og lendir í því óhappi að hún verður bitin af þessum apa.
Byrjar þá að gerast allskyns hlutir við hana eins og útlimir byrja að detta af, húðin byrjar að rotna þangað til að hún breytist í einhverskonar skrímsli. Hún byrjar svo að drepa fólk þannig að sonur hennar læsir og felur hana niður í kjallara. Svo smitast fleiri og fleiri fólk eftir að hafa verið bitinn af henni þannig að það deyja alltaf fleiri og fleiri.
Þetta er ein blóðugasta mynd í heimi. Það er voðalega mikið af innyflum og allskonar skemmtilegum viðbjóði í þessari mynd.
Mjög góð splatter mynd, mæli með henni.

“BAD TASTE” ***** - þessi fær sko fullt hús.

Einnig gerð af Peter Jackson, svo leikur hann líka í þessari mynd.
Geimverur ætlast til að hertaka jörðina og breyta henni í skyndibitastað. Eru þá fengnir einhverskonar geimverubanar í það að reyna losna við þær. Það koma upp mjög ógeðslegir hlutir í myndini. Það er verið að drekka geimveru ælu, sprengja hausa, éta heila og meira segja sprengja kindur með bazukum. Þetta er fyndin og ógeðsleg mynd, ekki bara blóð og innyfli heldur líka slím og
gröftur, jafnvel æla. Ég mæli allavegana ekki með því að nokkur
maður borði fyrir framan þessa mynd.

“ISLAND OF DEATH” ** - ég gef þessari nú bara 2 stjörnur

Þetta er ruddamynd. Par fer saman á eyju til að taka ljósmyndir en ekki bara venjulegar myndir.
Þau tæla fólk í það að hafa kynlíf með sér og drepur það svo á meðan annað þeirra tekur mynd af atburðnum.
Það er voða mikið af asnalegu rudda klámi, nauðgunum og fáranlegum morðum.
Atriðið sem mér fannst alveg skelfilegt var þegar maðurinn fór út í garð og nauðgaði kind, mér fannst það heldur betur ósmekklegt.
Þessi mynd er bara fyrir einhverja rudda og kinda-perverta út í bæ.

Þessar myndir fást væntalega á betri vídeoleigum landsins.

Takk fyrir.