Jæja, ég skellti mér á Blair Witch Project 2 í boði undirtóna, núna fyrir skömmu, og ég mæli sko með þessari mynd! Hún er frekar frábrugðin hinni myndinni og miklu betri!
Og það sem betra er.. hún er tekin betur upp.. ekki endalaus hlaup og læti! ;)
Hún er um það að krakkar fara í svona ferð.. skoða staðin þar sem filmur hinna krakkana fundust og svona…
Allavega þetta er skuggalega góð mynd og ég mæli eindregið með henni.. Og lögin eru líka ansi góð!