Das Experiment / The Experiment Þessi frábæra þýska mynd hefur slegið í gegn út um allan heim. Myndin er byggð á alvöru tilraun sem haldin var við Stanford háskólann í Bandaríkjunum árið 1971 enn hún gekk út á það að kanna mannlega hegðun við ákveðnar aðstæður án þess að nota ofbeldi. Góður hópur einstaklinga tók þátt og var þeim skipt miður í tvo hópa. Einn hópur voru fangar sem læstir voru inni í klefa og hinn hópur fangaverðir með mikið frelsi.

Aðalpersóna myndarinnar, Moritz Bleibtreu, leikur blaðamann sem ákveður að taka þátt og skrifa frétt um hana. Hann lendir í fangahópnum og ekki er það létt hlutverk. Enn eftir nokkra daga tilraunastarfsemi fer allt í rugl og fángaverðirnir fara að taka starfið sitt aðeins of alvarlega og margt furðulegt skéður.

Myndin heppnaðist mjög vel, gott handrit með mikla spennu og mjög góður leikur. Spennan magnast með tímanum og nær hún hápunkti í lok myndarinnar. Persónunar í myndinni hafa misjafnan persónuleika sem gerir myndin skemmtilega og spennandi því að hver einstaklingur bregst öðruvísi við hlutum.

Þessi mynd er ALGJÖRT MUST fyrir alla þá sem hafa gaman að spennumyndum.

Einkuna:
****1/2 af *****
kv. Sikker