Halle Berry er ein ofmetnasta leikkona og lélegasti óskarsverðlaunahafi allra tíma. Ég bakka ekkert með það, þetta er staðreynd. Halle Berry var nánast óþekkt fyrir árið 2001 þegar hún sýndi á sér brjóstin í Swordfish, hún hefur séð að það er hægt að græða ágætis pening nú til dags með því að gera það og kannski líka séð að það er það eina sem hún getur gert til að vekja athygli (því ekki eru leikhæfileikarnir miklir) og þessvegna hefur hún komið fram nakin eða mjög léttklædd í tvem myndum á 2 árum eftir það og ætlar víst að fara að leika í einhverju sturtu-slagsmála-fangelsis-nektar atriði í næstu mynd sinni.

Ég hef aldrei séð hana leika vel, í X-Men myndunum er hún hlægilega léleg og ég tala nú ekki um nýju James Bond myndina þar sem hún nánast eiðilagði myndina með lélegri frammistöðu, það lá við að maður skellti upp úr þegar hún var að reyna að vera eitthvað rosa töff og hörð. Svo hef ég aldrei skilið þetta með það hvað hún á að vera rosalega flott. Það sést vel í Swordfish að hún er með skökk og ljót brjóst. Hún er líka burstaklippt eins og lessa sem bætir ekki úr skák.

En þá er það stóra spurningin, hvernig gat hún fengið óskarsverðlaunin? Hún lék grenjuskjóðu í Monsters ball sem vældi alla myndina og var bara algjör leiðindargella. En Halle Berry er einmitt grenjuskjóða og leiðindargella þannig hún var bara að leika sjálfan sig. Svo er líka alvitað að akademían var í einhverjum ham að gefa svörtu fólki verðlaun til að bæta ímynd sína og líta út fyrir að vera rosa jafnréttissinnuð. Það var þegar hún tók við óskarnum sem ég byrjaði verulega að hata hana, hún byrjaði að hágrenja eins og 6 ára stelpa og öskraði síðan eitthvað VÚÚÚÚ! Óskarsverðlaunahafar eiga að halda skemmtilegar ræður ekki vera eins og smákrakkar á sviðinu.

En þetta er allavega mín skoðun,
Lyrus