Ég sá mynd um dæginn með vinum mínum sem heitir Requiem for a dream á VCD. Ég segi bara í stuttu máli að hún fjallar um vinahóp sem sekkur dýpra og dýpra í heim eiturlyfjanna. Þessi mynd er leikstýrð af leikstjóranum Darren Aronofsky sem einnig leikstýrði PI og mun leikstýra Batman: Year one. Einsog þið vitið flest öll sem hafa séð PI þá er Darren snillingur í myndatöku og sýnir á sérstakann hátt hvað persónan í kvikmyndinni er að ganga í gegnum. Ég gerði mér til gamans og póstaði á korkinn rateing á myndum frá 1 - 10 sem ég hef séð nýlega sem eru væntanleg í kvikmyndahús hér á landi. Veit ekki hvort það skipti eitthverju máli hvað einhver gaur út í bæ segir um hvað honum finnst um myndir en ef ég mundi gefa þessari mynd frá 1 upp í 10 þá mundi ég gefa henni 10/10. Þegar hún kemur í kvikmyndahús hér á landi þá hvet ég alla að fara að sjá þessa mynd. Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum

User Comments: One of the most powerful films ever made (Imdb)

PhIz.