Extreme ops  -  (kynning) Tökulið eitt ferðast til austurrísku Alpanna nálægt (fyrrum)landamærum Júgóslavíu til að taka upp á filmu auglýsingu þar sem þrír jaðaríþrótta áhugamenn flýja undan snjóflóði. Það sem þeir vita hinsvegar ekki er að tökustaðurinn er rétt hjá leynilegu fylgsni serbneska stríðsglæpamannsins, Slobodans Pavle. Þegar þeir ná honum óvart á filmu lendir tökuliðið í lífsháska þar sem þau reyna að komast undan honum í æsilegum eltingarleik í gegnum Alpana þar sem skíði, snjóbretti, fallhlífarstökk, rafting, þyrlur, mótorhjól og Base-jump koma við sögu.

Frá leikstjóranum Christian Dugay(The Assignment, The Art of War) kemur þessi frábæra spennumynd sem uppfull er af brjáluðum hasar og geggjuðum áhættuatriðum. Meðal leikara eru Devon Sawa úr Final Destination og Rufus Sewell úr Knight´s Tale.

Myndin verður frumsýnd föstudaginn 25.apríl í Laugarásbíói á stærsta THX tjaldi landsins.

Sýnishorn úr myndinni er hér:
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_type=trailers#297