Donnie Darko Hvað finnst ykkur um Donnie Darko?
Þetta er ein sú besta mynd sem ég hef séð í afar langan tíma! Ég er ennþá að klóra mér í hausnum yfir henni. Röð tilviljanna og allt það. Mynd sem að ég get horft á aftur og aftur. Jake Gyllenhaal er ótrúlegur í henni og á örugglega eftir að gera stóra hluti í framtíðinni! Flott að hafa líka Patric Swayze og Drew Barrymore í smáhlutverkum. Ég veit líka að þetta er afar misskilin mynd og margir hafa enga þolinmæði eða skilning í að horfa á hana. Bara að velta því fyrir mér hvort að það séu ekki einhverjir þarna úti sem kunna að meta hana jafn vel og ég?