Jake Gyllenhaal er örugglega óþekktur leikari í hugum flestra. Hann fæddist þann 19. desember árið 1980 í Los Angeles og var skírður Jacob Benjamin Gyllenhaal.
Sá ég hann fyrst í October sky ásamt Laura Dern. Leikur hann þar strák sem býr í námubæ en vill ekki enda líf sitt sem námuverkamaður svo hann og vinir hans reyna að komast inn í góðan háskóla á styrki með spaugilega en jafnframt sorglegur afleiðingum. Góð mynd hér á ferðinni.
Hann lék í þeirri fáranlegu mynd Bubble boy frá 2001 sem hann hafði alveg mátt sleppa.
Þekktasta hlutverk hans er e.t.v cult myndinn Donnie Darko (2001) þar sem hann leikur geðveikan náunga sem sér kanínuna Frank í hyllingum. Creepy er eina orðið sem mér dettur í hug til að lýsa þessari mynd og láttu það ekki koma þér á óvart að þegar þú ert búin að horfa á hana að þú skilur ekki neitt. Hún er mjög svipuð Fight Club að því leyti að þú þarft að horfa nokkrum sinnum á hana til að skilja hana.
Highway (2001) er mynd sem gerist á sama tíma og Kurt Cobain fremur sjálfsmorð og deilir hann skjánum með Jaret Leto og Salma Blair. Félagarnir Jack (Leto) og Pilot (Gyllenhaal) neyðast til að flýja Las Vegas þar sem Jack the king of fuck gerði þau mistök að sofa hjá giftri konu. Eiginmaðurinn var þekktur krimmi þar á bæ. Svo þeir stökkva upp í bíl og leggja á flótta. Þessi mynd þótti mörgum ekki vera nógu góð en Jake og Jaret Leto voru góðir.
Talað var um að Jake myndi taka við af Tobey Mcguire sem Spiderman sökum bakmeiðsla hjá Tobey kallinum en ekkert varð út úr því. Tobey hefur örugglega ekki viljað missa þá cashcow sem Spiderman hlutverkið er og því harkað sársaukan af sér
Næsta mynd Jakes verður The good girl ásamt Jennifer Aniston. Leikur hann þar lagerstrák sem verður ástfangin af persónu Anistons sem skapar vandamál fyrir þau bæði þar sem hún er gift.

Jake hefur fengið frábæra gagnrýni fyrir leikframmistöði sína sérstaklega í Donnie Darko og segir fólk að þarna sé stjarna á ferðinni.


Donnie: First of all, Papa Smurf didn't create Smurfette. Gargamel did. She was sent in as Gargamel's evil spy with the intention of destroying the Smurf village, but the overwhelming goodness of the Smurf way of life transformed her. And as for the whole gang-bang scenario, it just couldn't happen. Smurfs are asexual. They don't even have reproductive organs under those little white pants. That's what's so illogical, you know, about being a Smurf. What's the point of living if you don't have a dick?
Donnie Darko
________________________________________________