Ég lifi núna í argasta svekkelsi yfir því að hafa misst af Crouching Tiger, Hidden Dragon á kvikmyndahátíð hér um daginn því mjög margir fjölmiðlar úti segja þessa mynd bestu mynd ársins 2000. Ég er viss um að margir af ykkur kvikmyndaunnendum hafi ekki dottið í hug að skella sér á hana. Ég hvet alla til þess að senda póst á Háskólabíó og skora á þá að taka þessa mynd upp á aukasýningum.
Myndinni er leikstýrt af Ang Lee og Yuen Wo-ping sem setti upp bardagasenurnar í The Matrix setur þær upp í CT,HD. Chow Yun-Fat leikur aðalhlutverkið. Nú er bara drífa sig í að skrifa þennan blessaða mail!