Óskarsverðlaunaspá 2003 Óskarsverðlaunin verða afhent í Los Angeles aðfararnótt mánudagsins 24. mars nk. að íslenskum tíma. Ég ætla nú að koma með mína spá á verðlaununum og hverjir muni hljóta þau að þessu sinni.

Kvikmynd ársins 2002
Chicago
The Pianist
The Hours
The Lord of the Rings: The Two Towers
Gangs of New York

Allar eru þessar kvikmyndir góðar og verðskulda tilnefninguna. Chicago er mögnuð dans- og söngvamynd og virkilega vel leikin. Gangs of New York er vönduð og í heildina ágætis mynd. The Hours er magnað meistaraverk sem hittir beint í mark. LOTR: The Two Towers er snilldarlega færð í glæsilegan kvikmyndabúning af Peter Jackson og útkoman jafnast á við það allra besta í kvikmyndagerð samtímans. The Pianist er mögnuð úttekt á hernámi Póllands í seinni heimsstyrjöldinni og virkilega vel leikin. Slagurinn um bestu myndina er á milli Chicago og The Hours, annars gæti The Pianist átt séns, tel það þó ólíklegt. Ég spái því að Chicago vinni verðlaunin.

Leikstjóri
Martin Scorsese - Gangs of New York
Rob Marshall - Chicago
Stephen Daldry - The Hours
Roman Polanski - The Pianist
Pedro Almodovar - Talk to Her

Hér er slagurinn á milli Martin Scorsese, Rob Marshall og Stephen Daldry. Roman Polanski er of umdeildur til að eiga séns að mínu mati og Pedro Almodovar mun ekki hljóta verðlaunin. Ég tel tíma til kominn að meistari Martin Scorsese hljóti leikstjóraverðlaunin, enda á hann að baki magnaðan feril og hefur ekki hlotið verðlaunin þrátt fyrir að vera tilnefndur t.d. fyrir Raging Bull og Goodfellas. Annars gæti Rob Marshall og Stephen Daldry báðir átt góðan séns ef myndir þeirra sópa að sér verðlaunum. Vona að Scorsese fái Óskarinn.

Leikari í aðalhlutverki
Jack Nicholson - About Schmidt
Daniel Day-Lewis - Gangs of New York
Adrien Brody - The Pianist
Nicolas Cage - Adaptation
Sir Michael Caine - The Quiet American

5 frábærir leikarar keppa hérna um verðlaunin og allir eiga að baki góðar leikframmistöður, eiga í raun allir skilið að vinna verðlaunin. Adrien Brody fer á kostum í The Pianist og á sannkallaðan stórleik. Nicolas Cage hefur að mínu mati aldrei verið betri en í Adaptation. Michael Caine er frábær í The Quiet American. Daniel Day-Lewis brillerar í Gangs of New York og gamla brýnið Jack Nicholson er stórfenglegur sem Warren Schmidt í About Schmidt. Allir (nema Brody) hafa unnið Óskarinn. Nicolas Cage árið 1995 fyrir Leaving Las Vegas. Michael Caine árið 1986 fyrir Hannah and her Sisters og 1999 fyrir The Cider House Rules. Daniel Day Lewis hlaut þau 1989 fyrir My Left Foot. Nicholson hefur þrisvar hlotið Óskar (þetta er tólfta tilnefning hans); 1975 fyrir One Flew Over The Cuckoo´s Nest, 1983 fyrir Terms of Endearment og 1997 fyrir As Good As It Gets. Hér er slagurinn á milli þeirra Day-Lewis og Jack Nicholson. Ég er nú ansi mikill aðdáandi Nicholson og hef alla tíð verið og vona að hann fái núna sinn fjórða óskar, aðeins Katharine Hepburn hefur hlotið svo marga. Það gæti verið að Akademían vilji verðlauna Day-Lewis sem var frábær í sinni rullu. Erfitt val, ég styð Jack.

Leikkona í aðalhlutverki
Renée Zellweger - Chicago
Nicole Kidman - The Hours
Julianne Moore - Far From Heaven
Salma Hayek - Frida
Diane Lane - Unfaithful

Fimm frábærar leikkonur keppa um verðlaunin í þessum flokki og stóðu sig allar vel í sínum rullum. Salma Hayek er mögnuð í hlutverki Fridu, Nicole Kidman blómstrar í The Hours og hefur aldrei leikið betur (er reyndar óþekkjanleg í þessari mynd), Diane Lane var stórfengleg í Unfaithful, Julianne Moore brillerar í Far From Heaven og Renée Zellweger fer á kostum í Chicago. Engin þeirra hefur áður hlotið Óskar. Þetta verður barátta milli þeirra Kidman og Zellweger og er erfitt um að spá hvor muni vinna. Fer svolítið eftir því hvor myndin muni sópa að sér verðlaunum. Ég spái því að Renée Zellweger vinni verðlaunin.

Leikari í aukahlutverki
Paul Newman - The Road to Perdition
Chris Cooper - Adaptation
Christopher Walken - Catch Me If You Can
Ed Harris - The Hours
John C. Reilly - Chicago

Erfitt er að gera upp á milli þessara fimm leikara sem allir eiga stórleik í sínum myndum. Newman er hér að hljóta sína tíundu tilnefningu og hlaut Óskarinn 1986 fyrir The Color of Money, sem er langt í frá hans besta mynd. Hann brillerar í sinni mynd. Walken hlaut Óskarinn 1978 fyrir Deer Hunter. Ekki er mögulegt að spá hver muni vinna verðlaunin, ég tel að slagurinn muni verða milli Newman, Cooper (sem er magnaður í Adaptation) og Walken. Finnst við hæfi að Newman hljóti verðlaunin og vona að hann hljóti þau, þó allt eins líklegt sé að einhver annar fái þau. Þetta er galopinn kategóría.

Leikkona í aukahlutverki
Meryl Streep - Adaptation
Catherine Zeta-Jones - Chicago
Julianne Moore - The Hours
Kathy Bates - About Schmidt
Queen Latifah - Chicago

Þarna berjast fimm magnaðar leikkonur um verðlaunin. Allar fara á kostum í sínum myndum. Meryl Streep hlýtur þarna þrettándu tilnefningu sína (enginn hlotið fleiri) og vann verðlaunin 1979 fyrir Kramer vs. Kramer og 1982 fyrir Sophie´s Choice. Kathy Bates hlaut Óskarinn 1990 fyrir magnaðan leik sinn í Misery. Ég tel að slagurinn sé á milli Meryl Streep, Julianne Moore og Catherine Zeta-Jones. Ómögulegt að segja hvað Akademían geri í þessu. Líklegt að Zeta-Jones fái mörg atkvæði, hún er komin rúma átta mánuði á leið og hefur mikið fyrir því að mæta á staðinn og á mikið fylgi í kvikmyndaheiminum. Annars er skemmst að minnast þess þegar Annette Bening (American Beauty) mætti kasólétt á Óskarinn 2000 og tapaði (flestum að óvörum) fyrir Hilary Swank. Kannski á Julianne Moore séns, aldrei að vita. Ég spái því að Meryl Streep fái verðlaunin. Annars er þetta galopinn flokkur.

Framundan er spennandi Óskarsverðlaunahátíð og gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman. Hátíðin verður á lágstemmdum nótum að þessu sinni og glamúrinn lítill vegna stríðsátakanna fyrir botni Persaflóa. Aðeins hefur gerst þrisvar að verðlaunin séu færð til og aldrei hefur þeim verið aflýst. Ákveðið hefur verið að afhenda verðlaunin á tilsettum tíma þrátt fyrir allt. Framundan er spennandi verðlaunaafhending og gaman að sjá hverjir muni vinna.

Stefán Friðrik Stefánsson
stebbifr@simnet.is