Það er nú komið á hreint að Quentin Tarantino er að fara að setja saman action-myndina Kill Bill eftir eigin handriti af eigin sögu. Eina sem virðist vera komið á hreint með leikarana í þessari mynd er að Uma Thurman leikur í henni, aðalhlutverkið eða ekki ég veit ekki.
Það verður nú gaman að sjá hvort hann komi sterkur inn á nýjan leik eða klikki á þessu en allar hans myndir hingað til hafa verið meiriháttar, Pulp Fiction best, svo Reservoir Dogs og Jackie Brown er síst. Ég persónulega hef enga trú á að QT klikki sérstaklega þá ef hann skellir Samma gamla Djakkson í leikarahópinn. En það er bara eitt að segja í raun þegar ný mynd frá meistaranum er að koma: GAMAN GAMAN!!!