Ég er nokkuð nýr í hópi DVD áhugamanna og er farinn að fylgjast meira og
meira með þeim markaði, sjúkur í fréttir og upplýsingar.

Það sem ég komist að þegar ég hef verið að skoða titla á netinu er að
regon 1 útgáfur eru undantekningalaust lengri en regon 2 og gyldir það
um allar tegundir mynda, allt frá hrillingmyndum til teiknimynda. Ég er að
tala um 5-15 mín. mun. Hvað veldur?

Ég hef orðið vitni af því að það sé verið að klippa niður myndir fyrir regon
2, en það eru svona grófustu atriðin og samanlagt bara nokkrar sekúntur.
Það er því mjög varasamt að versla myndir hérna heima. Í fyrsta lagi ætti
ekki að klippa myndir svona niður og ef svo er þá ætti það að standa á
umslaginu að það sé búið að fiffa myndina til. Glæpsamleg ritskoðun.

Hvað segið þið?