Shawshank redemtion er ein besta mynd sem ég hef séð og vona að fleiri hafi notið hennar jafn mikið og ég. Þessi mynd er um bankamann að nafni Andy Dufresne(Tim Robbinson). Hann er dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa framið morð á eiginkonu sinni og elskhuganda hennar þrátt fyrir að vera saklaus. Hann kynnist manni sem er kallaður Red (Morgan Freeman). Hann verður vinsæll hjá spilltum fangelsis stjóranum og einnig vörðumum í fangelsinu vegna kunnáttu sinni í bankamálum og er hann fenginn til að hjálpa þeim í bankamálum. Hann fær vinnu í fangelsis bókasafninu. Því miður er lítið um bækur þarna. Hann fær því leyfi til að senda bréf til fangelsisnefndarinnar um bækur og meira drasl. Hann fær að sjá um bókhaldið fyrir Fangelsisstjóran. Fangelsisstjórin er mjög spilltur maður og Andy byrjar að ræna frá honum og í leiðinni er hann að reyna sleppa úr fangelsinu. Hann biður vin sinn Red um að fá svona pínulítin hamar sem hann notar svo seinna í myndinni. Ég segji ekki meira í bili vil ekki eyðileggja allt ;D enn vona að þetta hvetji ykkur til að sjá þessa mynd ef þið eruð búnað sjá hana hvet ég ykkur til að sjá hana aftur !! ****/ stjarna frá mér fyrir frábæran leik, Handrit, Söguþráð, og bara Skemmtun !!!.