Ég er STÓR aðdáandi Resident evil leikjanna, fyrir þá sem þekkja þá ekki þá voru þeir brautriðjendur í tölvuleikjagerð til að byrja með og eru þeir í fullu fjöri en, ég á þá alla og hef klárað hvern einn og einasta!

Þess vegna var ég nokkuð spenntur yfir því að það væri að koma mynd, ég bjóst við dimmri og hræðilegri mynd eins og tölvuleikirnir sem láta mann skjálfa á beinunum.

En í staðinn fáum við einhvern unglingasmell með tveimur barbí dúkkum í aðalhlutverki sem snýst um ekkert nema útlitið! Halda þessir Holliwood prumphausar að við almúgurinn séum ekki nógu þroskuð og gáfuð til að meðtaka alvörumyndir sem eru ekki eins og þær séu klipptar úr Cosmo Magasine? Leikurinn hjá aðalleikonunum er hreinasta hörmung, Milla Jovovich er skelfilega léleg og ég tala nú ekki um Michelle Rodrigues sem er með einhverja hallærislegustu töffarastæla sem ég hef séð. Þeir hafa líka ákveðið að nánast sleppa bara alvöru söguþráði eins og er í leikjunum og grafið upp einhverja rotnandi aumingja til að skrifa handrit og útbrunninn hlandhaus sem hefur gert eina ágæta mynd til að leikstýra myndinni, ráðið nokkrar barbí og stráka úr sænskum tískublöðum og fretað upp þessu óhugsaða metnaðarlausa rusli sem snýst bara um útlit og er ekki hræðilegri en meðal Woody Allen mynd!!!

1/2 stjarna