Hafði mig loks útí það að horfa á Blade á laugardagskvöldið og verð bara að segja það að ég var farinn að glotta útí annað eftir nokkrar mínútur.

Þvílíkt glorified B mynd sem þetta er! Wesley Snipes er hinn svarti Sylvester Stallone, dauðhaus með sólgleraugu og reynir að vera töff með því að segja sem minnst.

Framvinda, leikur, plott og allt er svoleiðis meingallað í þessari mynd. Grafíkin er þokkaleg, en brellurnar líta allar eins út og í einhverjum svona tölvuleik (er til Blade leikur?) þar sem að vampírur deyja með því að beinagrindin gyllist og gufar upp.

Bara enn ein B myndin, mæli ekki með henni.
Summum ius summa inuria