Santa Clause 2, The

Það eru 8 ár síðan að Scott Calvin (Tim Allen) varð óvart valdur af því að jólasveinninn dó og þurfti að taka við starfinu. Hann hefur verið jólasveinninn síðan og álfarnir hans segja að hann sé sá besti hingað til. En það eru vandamál í gangi, hann hefur verið að losna við aukakílóin og sonur hans, Charlie er komin á ‘óþekka’ listann hans. Scott ákveður að taka sér smá frí til þess að hjálpa syni sínum að komast á rétta braut og lætur varajólasvein sjá um hlutina á meðan hann er í burtu. En þegar varajólasveinninn fer að breyta ýmsum reglum t.d. að breyta skilgreiningunni á ‘þægum’ og ‘óþekkum’ og stefnir jólunum í hættu, verður Scott að snúa aftur og bjarga jólunum.

Frumsýning: 6.12 '02
Aðalhlutverk: Tim Allen, Elizabeth Mitchell (I), Eric Lloyd, David Krumholtz, Spencer Breslin, Wendy Crewson, Judge Reinhold
Handrit: Leonardo Benvenuti (II), Ken Daurio
Framleidd í Bandaríkjunum árið 2002. Ekkert aldurstakmark er á myndina!

- Björn bjorn@internet.is