Ég hef verið að heyra mikið um næstu mynd Stevens Soderbergh sem á að heita Ocean´s Eleven og er endurgerð af gamalli mynd. Þessi mynd fjallar um hóp af ræningjum sem ræna spilavíti í Las Vegas. Þetta væri ekki svona rosalega spennandi ef leikararnir í þessari mynd væru ekki svona rosalega frægir og svalir. George Clooney,Brad Pitt, Bruce Willis, Bill Murray og síðan er Julia Roberts og Matt Damon svona í afgang. Ef þessi hópur af fólki getur ekki gert svala mynd þá er það ekki hægt. Ég bíð þokkalega spenntur eftir þessari sem á að koma í maí 2001 eftir nokkra mánuði. Ef þú ætlar ekki á þessa þá máttu skokka á vegg fyrir mér.
OCEAN´S ELEVEN+Soderbergh+Clooney+Pitt+Willis+Murray= hrein snilld