Sæl kvikmyndagerðarfólk

Ég kíki alltaf hérna inn reglulega til að sjá hvað þið hinir kvikmyndaáhugamenn eruð að gera. Þetta er í fyrsta skipti sem ég pósta einhverju hérna inn.

Ég var að spá hvort það væri ekki sniðugt að hefja einhverskonar handrita samvinnu hér á huga. Það er að segja eitt project sem allir sem vilja geta verið hluti af.

Ég sé tvær leiðir til að gera þetta.
1. Það byrjar einhver á handriti og síðan gengur handritið á milli manna og hver og einn bætir við það.
2. Gera þetta í stíl við Four Rooms þar sem hver og einn kemur með sína eigin stuttmynd sem gerist innan kvikmyndarinnar.

Ég held að þetta gæti verið sniðugt og ef að það kemur eitthvað almennilegt út úr þessu væri hægt að kvikmynda þetta.