Huga-Streetball !!! Hvernig væri að halda svona huga-streetball mót fyrir alla sem stunda körfubolta og huga og mæta þá bara á eitthvern af völlum bæjarins og hafa smá mót. skiptum bara í lið eða maður þyrfti sjálfur að búa til lið með félugum sínum. Það væri flott að hafa svona 2-3 í liði og öll liðin myndu þá leggja í púkk sem sigurliðið vinnur. Svo kemur eitthver með gettoblaster og þetta verður ábyggilega geðveikt ef af þessu verður.
Ætlaði bara svona að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd, mér finnst allavega að við ættum að nýta góða veðrið og vera úti þó að við séum smá tölvupúkar!