Dallas Mavericks bar í nótt sigurorð af Utah Jazz í Salt Lake City, 84-83, í fimmta leik liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum þar sem liðið mætir San Antonio Spurs. Dallas átti frábæran endasprett og vann síðasta leikhlutann með 15 stigum. Michael Finley skoraði 33 stig fyrir Dallas, Dirk Nowitzki skoraði 19 stig og tók 8 fráköst og Juwan Howard skoraði 18 stig. Karl Malone var stigahæstur hjá Utah með 24 stig og tók 10 fráköst, Bryon Russell skoraði 15 stig.