Sven Göran Eriksson kom mönnum á óvart í dag þegar hann gerði framherjann Michael Owen að fyrirliða enska landsliðsins fyrir leikinn gegn Paragvæ á Anfield. Owen tekur við fyrirliðabandinu af David Beckham sem er meiddur. Eriksson ýjaði að því að Owen gæti orðið fyrirliði liðsins í HM færi svo að Beckham gæti ekki orðið með í keppninni. \\\“Michael Owen verður fyrirliði í leiknum gegn Paragvæ. Hann var kjörinn knattspyrnumaður Evrópu á síðasta tímabili, spilar með Liverpool, hefur hreinan skjöld og er afar vinsæll í enska hópnum,\\\” sagði Svíinn

þetta tók ég af boltanum