Shearer miðar á met!
Alan Shearer getur jafnað eigið met hjá Newcastle ef hann nær
að skora í sjöunda leik sínum í röð gegn Leeds í dag. Hann
skoraði í sjötta leiknum í röð gegn Crystal Palace á laugardag
og ætlar sér áreiðanlega að gera betur. “Ég nýt þess að spila
sem stendur en ég er viss um að þeir tímar munu koma þegar
mörkin láta á sér standa og þegar þar að kemur verður maður
að þola það,” sagði fyrirliðinn. “Það gengur vel hjá mér núna og
ég get notið þess að spila. Við sköpum færi og ég skora. Það er
fínt. Mér finnst ég spila mjög vel núna en mér leiðist að tala um
sjálfan mig.”
 
————————————————————————