Bogarde eykur á pressuna!!!!! Ónytjungurinn Winston Bogarde eykur enn á pressuna á Ranieri í dag er hann segist ekki vera búinn að vera hjá Chelsea þar sem pressan á Ranieri sé magnþrungin og alls óvíst hvað muni gerast á næstu dögum. Bogarde segir að honum hafi verið tjáð af Ranieri að hann muni ekki spila neitt með Chelsea en Boggi segir að hann sé ákveðinn í því að sýna stuðningsmönnum að hann sé einn besti varnarmaður í heimi og að hann sé tilbúinn að spila sem lánsmaður annarsstaðar þar til Ranieri fái reisupassann.