Effenberg fer hvergi Bayern Muchen hefur látið Fulham vita það að Stefan Effenberg er ekki til sölu og mun vera hjá Evrópumeisturunum til loka leiktímabilsins. Samningur hins 33 ára gamla Þjóðverja rennur út við enda tímabilsins en Jean Tigana þjálfari Fulham vill fá hann í sínar búðir. Markus Horwicks þjálfari Bayern sagði: “Effenberg mun alls ekki fara frá Bayern fyrir næsta sumar. Fulham getur alveg eins sleppt að hugsa um að fá hann því það eru ekki til nægir peningar í heiminum til að láta okkur selja Effenberg fyrir næsta sumar. Hann er okkur mjög mikilvægur og hvorki Fulham né nokkuð annað lið mun fá hann í sínar raðir”.