Forráðamenn Leifturs hafa rætt við Pál Guðlaugsson um að hann taki að sér þjálfun liðsins á næstu leiktíð.

Eins og menn muna var Páll rekinn frá Keflavík fyrr í sumar, og hefur síðan verið að aðstoða Jens Martin með Leiftursliðið.

Umræðurnar eru enn á frumstigi, en fastlega er búist við að Páll taki verkefnið að sér.