Brasilíumenn halda toppsæti styrkleikalistans enn einn mánuðinn en Frakkar fylgja þar fast á eftir. Argentína er með þriðja sterkasta landsliðið í heiminum í dag og hafa ekki verið svo ofarlega frá því að byrjað var að gefa út styrkleikalista árið 1993. Þjóðverjar eru komnir aftur inn á topp 10 listann á meðan að Englendingar halda áfram að hrapa niður á við. Íslenska landsliðið fellur niður um eitt sæti og erum við nú í því 52. sem er 9 sætum neðar en um áramótin.

Næsti listi kemur 11. Okt.