Lampard kominn til Chelsea! Nú er Frank Lampard jr. loksins kominn til Chelsea fyrir 11. milljónir punda og við Leeds aðdáendur getum andað léttar því ofmetnari leikmaður er vant fundinn á Englandi. Lampard er fyrsti enski leikmaðurinn sem Ranieri kaupir hjá Chelsea.
Lampard hefur lýst því yfir að hann ætli sér að vinna sér sæti í enska landsliðinu og er hann sannfærður um að evrópukeppnin sem Chelsea tekur þátt í eigi eftir að hjálpa honum mikið til að ná þessu markmiði sínu.