Svo gæti farið að Brynjar Björn Gunarsson leikmaður íslendingaliðsins Stoke City fari til Ipswich í sumar. George Burley þjálfari Ipswich hefur látið njósnara frá Ipswich fara og skoða kauða. Þetta kemur nú svosem ekki neitt mikið á óvart enda veit hver Íslendingur að Brynjar Björn er frábær leikmaður og allt of góður fyrir 2.deild. Enda var hann nú nýlega valinn Besti leikmaður Stoke City.