Ken Bates, hinn umdeildi eigandi Chelsea, hefur lofað stuðningsmönnum félagsins því að það verði miklar breytingar á liði Chelsea fyrir næstu leiktíð. Nokkrir leikmenn fá að fara og munu nýjir og yngri menn koma í þeirra stað.

“Það verður nóg að gera hjá okkur í sumar. Áætlanir til þess að styrkja liðið eru vel á veg komnar.

”Eftir 8 mánuði í starfi þá veit Ranieri vel hvernig leikmennirnir eru innan sem utan vallar. Það verða miklar breytingar hjá okkur, bæði munu menn fara og koma næstu mánuðina," sagði Bates í dag.

Frank Leboeuf, Albert Ferrer og Ed de Goey munu örugglega yfirgefa félagið. Þeir leikmenn sem helst hafa verið orðaðir við félagið eru Eric Carriere, Patrick Kluivert, Sol Campbell og Emmanuel Petit.

Það verður mjög gaman að fylgjast með Bates í sumar.