Viduka til AC Milan ? Talsmaður frá AC Milan greindi frá því að félagið hefði mikinn áhuga á að fá Mark Viduka til liðs við sig og talið er að verðmiðinn sé 20 milljónir punda.

Þessi sami talsmaður sagði einnig að þeir væru hættir að eltast við Michael Owen og David Beckham.

Þó að stjórnarformaður Leeds hafi sagt að Viduka sé ekki til sölu, þurfa Leeds menn peninga til að fjármagna kaupin á Robbie Keane í sumar og því gætu þeir þurft að selja Viduka.

En við verðum bara að bíða og sjá.