Allt brjálað hjá Lazio Það er allt brjálað í herbúðum Lazio þessa dagana eftir að Sergio Cragnotti, forseti Lazio, gagnrýndi leikmenn liðsins í fjölmiðlum. Nú hefur honum borist áskorun frá tveimur leikmönnum liðsins Juan Sebastian Veron og Diego Simeone að mæta á æfingu og einfaldlega segja hvaða leikmenn það séu sem eru ekki að leggja sig fram fyrir félagið.

“Hann ætti að koma á æfingasvæðið og ganga að þeim mönnum sem hann telur að leggi sig ekki nægilega fram. Cragnotti getur sagt það sem hann vill en það er viturlegra að segja það við sjálfa leikmennina að þeir séu ekki að standa sig í stað þess að hlaupa með þetta í blöðin” sagði töffarinn Veron.