Einn af mínum uppáhaldsleikmönnum-Jermaine Jenas Jermaine Jenas er fæddur 18. febrúar 1983 í Nottingham. Hann er 5' 11'' á hæð og því miður veit ég ekki alveg hvað það er mikið á metrum. Allavega þá byrjaði hann ferilinn hjá Nottingham Forest í fæðingarbæ sínum og spilaði sinn fyrsta leik janúar 2001 í Worthington Cup gegn Wolwes, leik sem þeir töpuðu 1-0. Það var ekki lengi að bíða eftir fyrsta deildarleik hans sem var gegn Crystal Palace. Tímabilið 01-02 var hann mikilvægur hlekkur í liði Forest undir stjórn Paul Hart og var farinn að banka á dyrnar hjá enska u21 landsliðinu sem fyrrum Forest stjóri, David Platt stýrði.

Fyrsta markið hans fyrir Forest kom í öðrum leik tímabilsins gegn Barnsley. Njósnarar stóru klúbbana og þar sem Forest voru í miklum fjárhagsörðugleikum var það aðeins tímaspursmál hvenar hann yrði seldur til stærra liðs. Með aðeins 33 aðalliðsleiki að baki var hann seldur til stórliðs Newcastle í byrjun febrúar 2002 fyrir 5 milljónir punda og höfðu Newcastle betur í baráttu gegn Leeds og Man Utd um kappann.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í 3-1 sigri á Southampton. Hans fyrsti A landsleikur kom Febrúar 2003 gegn Ástralíu þar sem hann spilaði fyrri hálfleik og stóð sig með ágætum. Hann á eftir að verða enn stærra númer í framtíðinni.

Kv.

Massimo…!